Rúmar 200 milljónir í uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði

Seyðisfjörður eftir aurskriðurnar í desember.
Seyðisfjörður eftir aurskriðurnar í desember. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að gera samkomulag til þriggja ára við Múlaþing og Austurbrú, samstarfsvettvang stjórnsýslu á Austurlandi um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði. 

Verkefninu fylgir 215 milljóna króna framlag á næstu þremur árum, eftir því sem fram kemur á vef Stjórnarráðsins. Gert er ráð fyrir að fjármagninu verði m.a. varið í ráðningu rekstrarráðgjafa, í endurskipulagningu,  í nýsköpunar og þróunarsjóð og leigustuðning.

Fram kemur í tilkynningu að atvinnulífið á Seyðisfirði standi frammi fyrir fordæmalausum og fjölþættum vanda í kjölfar aurskriðanna í desember síðastliðnum. Vandinn snúi meðal annars að rekstrarumhverfi og húsnæðismálum, en hamfarirnar höfðu veruleg áhrif á fjölda fyrirtækja sem sum hver hafa misst húsnæðið og er hætta á að einhver þeirra hverfi úr bænum. 

Sveitarfélagið Múlaþing og Austurbrú hafa staðið frammi fyrir umfangsmikilli greiningu á atvinnulífinu á Seyðisfirði sem hefur leitt í ljós að mikilvægt sé að styðja við heimamenn, ekki síst á næstu mánuðum. 

mbl.is