Nokkrir íslenskir fjárfestar taka þátt í hlutafjárútboði Arctic Fish Holding, nýs móðurfélags Arctic Fish á Vestfjörðum. Mun innlendum fjárfestum fjölga þótt stærsti hluthafinn, Norway Royal Salmon (NRS), muni halda sínum helmings eignarhlut og jafnvel bæta við hann.
Búið er að tryggja sölu á stórum hluta þess hlutafjár sem ætlunin er að selja. Útboð á hlutafé í Arctic Fish hófst í gærmorgun og lýkur síðdegis í dag. Ætlunin er að selja um 600 milljónir norskra króna sem svarar til 9,1 milljarðs króna.
Stærstu liðirnir í því eru útgáfa á nýju hlutafé fyrir 350 milljónir norskra, 5,3 milljarða íslenskra, og sala á hluta eignar annars stærsta hluthafans, Bremesco Holding Ltd. sem er félag pólska athafnamannsins Jerzy Malek, fyrir um 200 milljónir norskra króna. Hlutur hans minnkar úr 47,5% niður undir 29% eða lægra hlutfall.
Búið er að tryggja fyrir fram sölu til tveggja núverandi hluthafa, NRS og Novo ehf., fyrir 200 og 45 milljónir norskra kr. Neil Shiran Thorisson, fjármálastjóri Arctic Fish, hefur skráð sig fyrir hlut upp á 41 milljón norskra króna og aðrir stjórnendur saman fyrir 4,6 milljónum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.