Erfitt að segja til um hefndaraðgerðir

Frá Rauðagerði.
Frá Rauðagerði. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Lög­regl­an hef­ur fengið tölu­vert af upp­lýs­ing­um og er búin að ræða við þó nokk­urn fjölda fólks vegna skotárás­ar í Rauðagerði á laug­ar­dags­kvöld þar sem al­bönsk­um manni var ráðinn bani fyr­ir utan heim­ili sitt.

Átök­in eru sögð vera um yf­ir­ráð yfir fíkni­efna­markaði í und­ir­heim­um um þess­ar mund­ir, vegna valdatóms sem myndaðist þegar stór­tæk­ur ís­lensk­ur fíkni­efna­sali tók að draga sig í hlé fyr­ir skömmu.

Mar­geir Sveins­son aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn seg­ir að erfitt sé að segja til um ein­hverj­ar hefnd­araðgerðir vegna árás­ar­inn­ar á laug­ar­dags­kvöld.

Hann seg­ir lög­reglu kanna hvort árás­in teng­ist átök­um í und­ir­heim­um en get­ur ekki svarað því hversu marg­ir voru í hús­inu við Rauðagerði á laug­ar­dags­kvöldið.

Er­lend­ur maður hef­ur verið úr­sk­urðaður í gæslu­v­arðhald til föstu­dags­ins 19. fe­brú­ar en Mar­geir seg­ir enn frem­ur til skoðunar hvort fleiri séu grunaðir um eitt­hvað sak­næmt.

mbl.is