Endurmeta stöðuna á Seyðisfirði

Frá Seyðisfirði.
Frá Seyðisfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verið er að end­ur­meta stöðuna á Seyðis­firði varðandi rým­ingu í bæn­um vegna skriðufalla. Veður­stof­an hef­ur setið á fundi vegna máls­ins og að hon­um lokn­um mun hún funda með al­manna­vörn­um.

Þetta seg­ir Esther Hlíðar Jen­sen, sér­fræðing­ur á of­an­flóðavakt Veður­stofu Íslands, og bæt­ir við að eng­ar fregn­ir hafi borist af nýj­um skriðuföll­um á svæðinu í dag.

Gef­in verður út til­kynn­ing að lokn­um fund­in­um með al­manna­vörn­um um hvort rým­ingu verður aflétt. Að sögn Jó­hanns K. Jó­hanns­son­ar, sam­skipta­stjóra al­manna­varna, má reikna með til­kynn­ing­unni á næstu klukku­stund.

Um 100 íbú­ar í 46 hús­um á Seyðis­firði rýmdu hús sín í gær­kvöldi vegna skriðuhættu á svæðinu. Fyrr um dag­inn hafði rík­is­lög­reglu­stjóri, í sam­starfi við Veður­stof­una og lög­reglu­stjór­ann á Aust­ur­landi, lýst yfir hættu­stigi á svæðinu.

mbl.is