Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands, hefur aflýst hættustigi á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum.
Rýmingu hefur verið aflétt á þeim íbúðarhúsum sem voru rýmd í gær og íbúar geta því snúið heim, að því er kemur fram í tilkynningu.
Um eftirtalin hús er að ræða:
Dregið hefur úr rigningu og gerir veðurspáin ráð fyrir úrkomulitlu og kólnandi veðri fram á föstudag. Ekki er vitað til þess að ofanflóð hafi fallið frá því á mánudag.
Á Seyðisfirði er uppsöfnuð úrkoma rúmlega 100 millimetrar frá því á laugardag sem er það mesta sem komið hefur frá skriðuhrinunni í desember. Mælingar í borholum í Neðri-Botnum sýndu nokkuð hraða hækkun á vatnsborði á sunnudag en nú hefur dregið úr henni. Mælingar á hreyfingu jarðlaga með alstöð og sjálfvirkum GPS stöðvum sýna enga markverða hreyfingu.
Í tilkynningunni segir að það sé góðs viti að þetta veður skuli ekki hafa valdið óstöðugleika í jarðlögum hlíðarinnar og þess vegna er ekki reiknað með því að það þurfi að grípa til sambærilegrar rýmingar á Seyðisfirði nema úrkoma og leysing verði nokkru meiri en nú varð. Mælitæki til þess að vakta aurskriðuhættu í hlíðinni, sem komið hefur verið fyrir á undanförnum vikum, reyndust vel.
Auk þess hefur óvissustigi vegna hættu á ofanflóðum verið aflýst á Austfjörðum.