Ágætur loðnuafli við Eyjar

Loðnuveiðar úti fyrir Þorlákshöfn.
Loðnuveiðar úti fyrir Þorlákshöfn. mbl.is/Golli

Vel veiddist af loðnu í grennd við Vestmannaeyjar í gær, austan við Landeyjahöfn. Nokkur íslensku veiðiskipanna fengu góðan afla á þessum slóðum af loðnu sem hentar vel til frystingar og voru fregnir um 19% hrognafyllingu.

Loðna virðist vera á stóru svæði fyrir Suðurlandi. Fregnir bárust í gær af rekinni loðnu í Víkurfjöru.

Færeysk og grænlensk skip voru að veiðum í Meðallandsbug og síðustu norsku skipin, sem eiga eftir að ná kvóta sínum, voru úti fyrir Austfjörðum. Norsku skipin áttu í gær eftir að veiða um þúsund tonn af heimildum sínum. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu voru þau í gær búin að landa hér samtals rúmlega tíu þúsund tonnum á vertíðinni.

Eitt norsku skipanna, sem enn eru á miðunum, er Hardhaus, sem Ísfélagið í Vestmannaeyjum hefur keypt. Að lokinni vertíð Norðmanna er ráðgert að skipið fari á loðnuveiðar og beri þá nafnið Álsey VE. aij@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: