Vinkonurnar og áhrifavaldarnir Sunneva Eir Einarsdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir skelltu sér á Hótel Geysi á laugardagsnóttina. Með í för voru kærastar þeirra beggja, Benedikt Bjarnason og Geir Ulrich.
Ferðin var boðsferð á vegum Hótels Geysis og því má ætla að áhrifavaldarnir hafi ekki þurft að borga fullt verð fyrir nóttina, en herbergi fyrir tvo kostar á bilinu 25 til 57 þúsund krónur.
Pörin nutu alls þess sem hótelið hefur upp á að bjóða og nýttu auðvitað tímann í að taka flottar myndir á hótelinu, sem er einstaklega smekklega innréttað.