Samdráttur varð í framleiðslu Stolt Sea Farm á senegalflúru á Reykjanesi á síðasta ári. Flutt voru út um 300 tonn af heilli og ferskri flúru með flugi til Bandaríkjanna og Evrópu og er það um 100 tonnum minna en áætlað var.
Sigurður Helgi Ólafsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins á Íslandi, segir að vandamál hafi komið upp í framleiðslunni, sem búið sé að ná tökum á. Einnig hafi kórónuveirufaraldurinn sett strik í reikninginn í fyrra og fiskur hafi um tíma safnast upp í kvíum fyrirtækisins. Loks megi nefna að í desember hafi Stolt Sea Farm opnað nýja eldisstöð með senegalflúru á Spáni og hafi framleiðsla þaðan komið til á sama tíma og markaðir voru erfiðir.
Alls starfa 19 manns hjá Stolt Sea Farm á Reykjanesi og fyrst var slátrað þar 2015. Fyrirtækið er norskt að uppruna og er með landeldi á sandhverfu og flúru í 14 stöðvum á Spáni, Portúgal, Noregi og Íslandi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.