„Auðvitað eru þetta gríðarleg von-brigði fyrir alla aðila að það sé ekki búið að uppræta þetta enn þá. Sannarlega vonum við að nú séum við komin á betri stað, því í sjálfu sér sjáum við þetta í færri og færri sýnum og magnið er alltaf minna. Við vitum að við erum á réttri leið.“
Þetta segir Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs hjá Reykjavíkurborg. Greining Náttúrufræðistofnunar Íslands á sýnum sem tekin voru í Fossvogsskóla sýndi að enn finnst mygla í skólanum þrátt fyrir miklar endurbætur á húsnæði hans. Sýnin sem leiddu þetta í ljós voru tekin 16. desember 2020.
Helgi segist skilja óánægju foreldra með skólann og magn myglugróa í skólanum sé óviðunandi. „Niðurstöður mælinga sýna að á nokkrum stöðum er of mikið af myglugróum. Við athugun verkfræðistofu kemur í ljós að það er óviðunandi frágangur á rakasperru í þaki hússins,“ segir Helgi í Morgunblaðinu í dag.