Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað fyrstu stjórn Fiskeldissjóðs og fellur það í hlut Haraldar Líndal Haraldssonar, fyrrverandi bækarstjóri Hafnarfjarðar, að gegna stöðu formanns stjórnar Fiskeldissjóðar.
Ásamt Haraldi í stjórn eru þau Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna og heilbrigðisráðherra, sem tilnefnd er af forsætisráðherra og Kjartan Dige Baldursson, sérfræðingur í enfahags- og fjármálaráðuneytinu, tilnefndur af fjármálaráðherra.
„Hlutverk sjóðsins er að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum,“ segir í tilkynningu sem birt er í dag á vef stjórnarráðsins.
Stjórn Fiskeldissjóðs hefur yfirumsjón með rekstri sjóðsins og eru tekjur hans hlutfall af því gjaldi sem rekstrarleyfishafar fiskeldisstöðva í sjó greiða í ríkissjóð.
Þá segir að „stjórn sjóðsins mun fljótlega auglýsa eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem eru til þess fallin að byggja upp innviði og þjónustu á svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað. Áætlað er að sjóðurinn hafi 113 milljónir króna til umráða á árinu 2021.“