Laxinn skilaði næstmestum útflutningstekjum

Eldislaxinn verður sífellt mikilvægari útflutningsvara.
Eldislaxinn verður sífellt mikilvægari útflutningsvara. mbl.is/Helgi Bjarnason

Eld­islax­inn verður sí­fellt mik­il­væg­ari út­flutn­ings­vara. Sú staðreynd er kannski ekki ný af nál­inni en það að lax­inn skilaði næst­mest­um út­flutn­ings­verðmæt­um á eft­ir þorski í fyrra þykja nokk­ur tíðindi.

Fram kem­ur á Radarn­um að lengst af hafi loðnan verið næst­umfangs­mesta teg­und­in og skilað næst­mest­um út­flutn­ings­verðmæt­um á eft­ir þorski síðastliðinn ára­tug, en vegna loðnu­brests er hún ekki til staðar. Þá hef­ur lax­inn vaxið mikið und­an­far­in ár og hef­ur hann tekið fram úr flest­um öðrum teg­und­um.

Mynd/​Radar­inn

Talið er lík­legt „að hlut­ur lax­ins muni vaxa enn frek­ar á kom­andi árum og að hann muni þar með festa sig ræki­lega í sessi sem ann­ar verðmæt­asti fisk­ur­inn. Að sjálf­sögðu geta aðrar fisk­teg­und­ir bætt við sig, en þegar veitt er úr nátt­úru­leg­um stofn­um er magn­aukn­ing þeirra miklu óviss­ari“, seg­ir á Radarn­um.

2,1 millj­arður í janú­ar

Fram kem­ur að árið 2021 hef­ur byrjað vel í fisk­eld­inu og voru út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða 3,1 millj­arður króna í janú­ar, sem er stærsti janú­ar frá upp­hafi.

Í krón­um talið er aukn­ing­in á milli ára 22% en í er­lendri mynt 10%. Þar af nam út­flutn­ings­verðmæti eld­islax um 2,1 millj­arði króna.

mbl.is