Aunsmo nýr rekstrarstjóri hjá Löxum

Laxar fiskeldi ehf. hefur fengið nýjan rekstrarstjóra; Arnfinn Aunsmo.
Laxar fiskeldi ehf. hefur fengið nýjan rekstrarstjóra; Arnfinn Aunsmo. Ljósmynd/Laxar fiskeldi ehf.

Arn­finn Auns­mo hef­ur verið ráðinn rekstr­ar­stjóri Laxa fisk­eld­is. Hann hef­ur áður meðal ann­ars gegnt stöðu rekstr­ar­stjóra Aqua­Gen og for­stöðumanns þró­un­ar­sviðs hjá Måsøval, en norska fyr­ir­tækið Måsøval gerðist á síðasta ári nýr eig­andi að meiri­hluta í Löx­um.

Auns­mo er menntaður dýra­lækn­ir við Há­skól­ann í Ed­in­borg og hef­ur doktors­gráðu í út­breiðslu sjúk­dóma frá dýra­lækna­skól­an­um í Ósló.

„Ég er hæst­ánægður að hefja starf sem rekstr­ar­stjóri hjá Löx­um og að fá tæki­færi til að bjóða fram þekk­ingu mína og reynslu og vinna að frek­ari þróun og stækk­un á starf­semi Lax­ar á Íslandi ásamt því teymi sem þegar starfar hjá fyr­ir­tæk­inu,“ er haft eft­ir Auns­mo í til­kynn­ingu.

mbl.is