Íslendingar eiga 10% í Arctic Fish

Arctic Fish er með starfsemi á Vestfjörðum.
Arctic Fish er með starfsemi á Vestfjörðum.

Talið er að ís­lensk fyr­ir­tæki, líf­eyr­is­sjóðir og ein­stak­ling­ar eigi nú liðlega 10% hlut í Arctic Fish Hold­ing, norsku eign­ar­halds­fé­lagi fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish á Vest­fjörðum. Nokkuð líf­leg viðskipti hafa verið með hluta­bréf í fé­lag­inu eft­ir að þau voru skráð á hluta­bréfa­markað í Nor­egi. Hluta­bréf­in ganga nú kaup­um og söl­um á tæp­lega 7% lægra verði en gilti í útboðinu.

Arctic Fish Hold­ing var skráð á Euronext Growth-hluta­bréfa­markaðinn í kaup­höll­inni í Osló í síðasta mánuði í kjöl­far útboðs á nýju hluta­fé. Veru­leg­ur áhugi reynd­ist á þátt­töku og gengu ís­lensk, norsk og alþjóðleg fyr­ir­tæki inn í hlut­hafa­hóp­inn, ásamt fjölda starfs­manna.

NRS með meiri­hluta

Fyr­ir­tækið hef­ur nú birt á heimasíðu sinni hlut­hafal­ista sem miðaður er við 26. fe­brú­ar, eft­ir að útboðinu lauk. Stærsti hlut­haf­inn, Norway Royal Salmon, á nú 51,28% hlut en átti 50% fyr­ir útboðið. Hins veg­ar seldi ann­ar stærsti hlut­haf­inn, Bremesco Ltd., tölu­vert af sín­um hlut og á nú 26,2% hluta­fjár í stað 47,5%. Stofn­end­ur Arctic Fish, Sig­urður Pét­urs­son og Guðmund­ur Stef­áns­son og kon­ur þeirra, juku hlut sinn úr 2,5 í 4,3%, og eru þriðji stærsti hlut­haf­inn í nafni Novo ehf., þrátt fyr­ir inn­komu margra nýrra hlut­hafa.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: