20% íbúa Vestfjarða lifi á fiskeldi

Sjókvíaeldi.
Sjókvíaeldi. Ljósmynd/Aðsend

Áætlað er að 640 bein störf verði við fisk­eldi á Vest­fjörðum þegar unnt verður að nýta há­marks­lífs­massa fjarðanna sam­kvæmt áhættumati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Til viðbót­ar koma 390 óbein störf og verða störf við fisk­eldi því sam­tals liðlega eitt þúsund. Sam­kvæmt því má gera ráð fyr­ir að allt að 1.850 íbú­ar Vest­fjarða byggi af­komu sína að ein­hverju leyti á fisk­eld­inu, eða allt að 20% íbúa.

Áætl­un um fram­leiðslu í fisk­eldi og fjölda starfa kem­ur fram í skýrslu um grein­ingu á áhrif­um fisk­eld­is á Vest­fjörðum sem KPMG hef­ur gert fyr­ir Fjórðungs­sam­band Vest­f­irðinga og Vest­fjarðastofu og birt er á vef síðar­nefndu sam­tak­anna. Skýrsl­an er í raun upp­færsla á skýrslu sem gef­in var út á ár­inu 2017.

Fisk­eldi vex hratt á Vest­fjörðum og Aust­fjörðum og er að verða ein af grunnstoðum at­vinnu­lífs­ins í þess­um lands­hlut­um, sér­stak­lega á sunn­an­verðum Vest­fjörðum, og verður það enn frek­ar á næstu árum, ef fram fer sem horf­ir.

150 störf nú þegar

Tvö stærstu fyr­ir­tæk­in í sjókvía­eldi á Vest­fjörðum, Arn­ar­lax og Arctic Fish, fram­leiddu rúm­an helm­ing alls eld­islax sem flutt­ur var út frá Íslandi á síðasta ári. Hjá þeim störfuðu um 170 manns í lok árs­ins 2019, þar af 150 á Vest­fjörðum. Þeim hef­ur fjölgað síðan.

Hafró hef­ur gefið út að há­marks­líf­massi vegna sjókvía­eld­is í fjörðum Vest­fjarða sé 64.500 tonn. Miðað við 80% nýt­ingu á há­marks­líf­massa má bú­ast við að ár­leg fram­leiðsla verði um 51 þúsund tonn, þegar leyf­in verða nýtt að fullu. Áætlað sölu­verðmæti afurðanna er 46 millj­arðar króna og að skatt­sporið verði 2,2 millj­arðar og þar af renni um 1,1 millj­arður til sveit­ar­fé­lag­anna. Þá er áætlað að launa­greiðslur verði 5 millj­arðar króna, aðeins vegna beinna starfa við fisk­eldi.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: