Valur sagður bylting fyrir Sjótækni á Tálknafirði

Kjartan Hauksson kveðst ánægður með að nýi báturinn er kominn …
Kjartan Hauksson kveðst ánægður með að nýi báturinn er kominn til landsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tví­bytn­an Val­ur kom til Reykja­vík­ur í dag á leið sinni til Vest­fjarða, en Val­ur er nýj­asta fjár­fest­ing Sjó­tækni á Tálknafirði. Fyr­ir­tækið gerði ný­verið þjón­ustu­samn­ing við fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in Arn­ar­lax og Arctic Fish og mun bát­ur­inn koma að góðum not­um að sögn Kjart­ans Hauks­son­ar, fram­kvæmda­stjóra Sjó­tækni. „Þetta er bylt­ing í okk­ar þjón­ustu að geta boðið svona öfl­ug­an vinnu­bát sem er sér­út­bú­inn fyr­ir okk­ur og okk­ar starf­semi,“ seg­ir hann.

Valur er myndarleg tvíbytna.
Val­ur er mynd­ar­leg tví­bytna. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Að sögn Kjart­ans kom bát­ur­inn með skipi til Aust­fjarða frá Nor­egi en þaðan hef­ur hon­um verið siglt til Vest­manna­eyja, svo til Reykja­vík­ur og mun svo halda áfram til Vest­fjarða inn­an skamms. Spurður hvernig sigl­ing­in hafi gengið svar­ar Kjart­an: „Hún hef­ur bara gengið vel þrátt fyr­ir leiðinda­sjó­lag.“

Val­ur er af gerðinni Cata­m­ar­an NABCAT 1510 DD frá Moen Mar­in í Nor­egi og er fimmtán metra lang­ur og tíu metra breiður. Tví­bytn­an er búin öfl­ug­um vél­um ásamt krön­um og búnaði til að setja út og strekkja kerf­is­fest­ing­ar fyr­ir kví­ar. Aðstaða fyr­ir áhöfn­in um borð er góð og mun bát­ur­inn auðvelda alla vinnu hjá Sjó­tækni við fisk­eldið.

mbl.is