Nýtt hlutafé styður við stækkun ÍS 47

Á myndinni má sjá fulltrúa seljenda og kaupanda ásamt ráðgjöfum …
Á myndinni má sjá fulltrúa seljenda og kaupanda ásamt ráðgjöfum sínum við undirritun kaupsamnings. Ljósmynd/Aðsend

ÍV SIF Equity Farm­ing ehf. (ÍSEF) festi ný­verið kaup á meiri­hluta í fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­inu ÍS 47 ehf. á Flat­eyri sem hef­ur byggt upp þorsk- og regn­bogasil­ung­seldi í Önund­arf­irði. ÍSEF er eign­ar­halds­fé­lag í eigu hóps ís­lenskra fjár­festa sem hef­ur að meg­in­mark­miði að byggja upp eigna­safn í fisk­eldi og tengdri starf­semi og eru það Íslensk verðbréf sem halda utan um rekst­ur þess.

„Þetta er frá­bært fyr­ir ís­lenskt fisk­eldi, Flat­eyri og svæðið í heild,“ seg­ir Gísli Jón Kristjáns­son, stofn­andi ÍS 47. Hann kveðst hvergi hætt­ur þrátt fyr­ir að hafa selt stór­an hlut í fé­lag­inu og fer hann ásamt eig­in­konu sinni, Friðgerði Ómars­dótt­ur, nú með 16% hlut í fé­lag­inu sem hef­ur verið lítið fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki frá stofn­un árið 2003. Fé­lagið fékk fyrst leyfi til eld­is á regn­bogasil­ungi í Önund­arf­irði árið 2013 og setti þá út 19.000 seiði.

Það var í janú­ar sem Mat­væla­stofn­un gaf út nýtt rekstr­ar­leyfi fyr­ir eldið í Önund­arf­irði og fimm­faldaðist heim­ilaður há­marks­líf­massi ÍS 47 í firðinum úr 150 tonn­um af þorski og 50 tonn­um af regn­bogasil­ungi í 1.000 tonn af þorski og regn­bogasil­ungi. „Þetta er í raun og veru bara byrj­un­in,“ seg­ir Gísli Jón, en hann hef­ur áður lýst því yfir að stefnt sé að því að stækka eldið í Önund­arf­irði í 2.500 tonn í sam­ræmi við burðarþol.

Seiði til út­setn­ing­ar í vor

Þá tel­ur Gísli Jón aðkomu ÍSEF til þess fallna að styðja við stækk­un­ar­áformin og hafa nýir hlut­haf­ar lagt fé­lag­inu til aukið hluta­fé. Í til­kynn­ingu segj­ast þeir telja að „rekst­ur fé­lags­ins geti til framtíðar stutt dug­lega við at­vinnu­upp­bygg­ingu á Vest­fjörðum og þá sér­stak­lega á Flat­eyri. Fé­lagið hef­ur þegar tryggt sér seiði til út­setn­ing­ar í vor og munu fjár­fest­ing­ar í frek­ari búnaði og mannaráðning­ar fylgja í kjöl­farið.“ Kveðast nýir eig­end­ur meiri­hluta í ÍS 47 sjá „tæki­færi í mögu­legu sam­starfi eða sam­ein­ing­um við önn­ur fé­lög sem stunda fisk­eldi á norðan­verðum Vest­fjörðum.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: