Hreyfing við upptök skriðunnar á Seyðisfirði

Seyðisfjörður.
Seyðisfjörður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Orðið hefur vart við hreyfingu á einum speglanna sem notaðir eru til þess að fylgjast með hreyfingu jarðlaga við upptök skriðunnar sem féll úr Botnabrún á Seyðisfirði 18. desember sl. milli Búðarár og Stöðvarlækjar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Austurlandi.

Spegillinn sem um ræðir er skammt ofan innanverðra skriðuupptakanna og gera má ráð fyrir að hrynji úr bröttu brotstáli stóru skriðunnar á næstu mánuðum meðan jarðlög þar leita nýs jafnvægis.

Fyrirséð var að þetta myndi gerast og hefur verið greint frá því á íbúafundum. Ekki er gert ráð fyrir hættu í byggð af þessum völdum en hreyfingin er tilefni til þess að gæta sérstakrar varúðar við vinnu á skriðusvæðinu. Þykir og rétt að vara við ferðum gangandi í hlíðinni undir upptökum stóru skriðunnar í desember.

Reistir hafa verið varnargarðar ofan íbúðarhúsa næst skriðusvæðinu sem draga úr hættu á því að frekari skriðuföll úr upptökum stóru skriðunnar skapi hættu í byggðinni.

mbl.is