Gullinrafi í eldi á Reykjanesi

Gullinrafi. Fiskurinn finnst víða í hlýjum sjó og verður alinn …
Gullinrafi. Fiskurinn finnst víða í hlýjum sjó og verður alinn við 22-24 gráður í eldiskerjum á Reykjanesi.

Hraðvaxta gull­inrafi bæt­ist á næst­unni í eldisker Stolt Sea Farm á Reykja­nesi. Áformað er að flytja inn nú í vor hátt í tíu þúsund seiði úr eld­is­stöð á Spáni og annað eins næsta haust.

Miðað er við 30 tonna fram­leiðslu á ári í þessu til­rauna­verk­efni, en ef vel geng­ur er lík­legt að hressi­lega verði bætt við á næstu árum.

Fyr­ir er Stolt Sea Farm með eldi á senegal-flúru á Reykja­nesi og hef­ur fram­leiðslan gjarn­an numið um 400 tonn­um á ári. Þá eru 200 styrj­ur þar í til­rauna­eldi.

Í um­fjöll­un um eldi þetta í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir Sig­urður Helgi Ólafs­son, fram­kvæmda­stjóri Stolt Sea Farm á Íslandi,  að víða sé áhugi á þess­ari fisk­teg­und, sem full­vax­in er oft um metri að lengd. Hann sé hraðvaxta og eldið eigi að vera arðbært þar sem fisk­ur­inn sé notaður í hágæðavöru eins og sus­hi og flök eða steik­ur, sem stund­um komi í staðinn fyr­ir tún­fisk. Fisk­ur­inn sé hátt verðlagður á mörkuðum í Evr­ópu og Banda­ríkj­un­um, þeim sömu sem fyr­ir­tækið sel­ur senegal-flúr­una á.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: