Þorsteinn J. gerir upp íbúð í Vesturbænum

Þorsteinn J. Vilhjálmsson rithöfundur og pródúsent hefur fest kaup á íbúð í Vesturbænum. Hann bjó síðast í Bryggjuhverfinu en er nú kominn aftur heim ef svo má segja. Hann fékk innanhússarkitekinn Helgu Sigurbjarnardóttur til liðs við sig til þess að búa til nýja umgjörð utan um fjölskylduna. Búið er að brjóta niður veggi og verður þvottavélin hluti af eldhúsinnréttingunni þegar allt er klárt. 

Í íbúðinni er sérlega falleg birta og útsýni til þriggja átta. Lesendur Smartlands munu fá að fylgjast með ferlinu og verður Þorsteinn heimsóttur aftur þegar íbúðin er tilbúin.

mbl.is