Svona heldur Dögg einstaka páska

Dögg Guðmundsdóttir, stjórnarráðsfulltrúi í utanríkisráðuneytinu, er með einstakan áhuga og hæfileika til að baka. Hún gerir girnilegar páskakökur sem verða alltaf flottari með árunum. Hún hefur mikinn áhuga á kökuskreytingum og deilir kökum sínum og öðru tengdu efni á Instagram undir nafninu Kökudísin. Dögg starfar á skrifstofu ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu og er gift Ólafi Þór Rafnssyni, byggingatæknifræðingi hjá Verkís. Þau eiga tvö börn; Guðmund Rafn, sjö ára, og Heiðdísi Heklu, fjögurra ára. Kökurnar hennar Daggar vekja athygli víða. Ekki síst fyrir að vera litríkar.

„Mér finnst voðalega gaman að baka. Ég vinn helst með smjörkrem og finnst gaman að leika mér með liti. Ég nota oft litað súkkulaðidripp og kökuskraut í alls konar litum. Mér finnst líka gaman að prófa kannski óhefðbundnari leiðir til að skreyta, eins og að nota piparkökumót, stensla, skrautkúlur og jafnvel marens til að ná ákveðnu útliti.“

Ástæðan fyrir því að Dögg valdi nafnið kökudísin á Instagram er sú að dóttir hennar heitir Heiðdís og fannst henni Dísar-nafnið ævintýralega fallegt og viðeigandi fyrir kökurnar sínar.

„Ég deili ekki kökuuppskriftum á samfélagsmiðlum heldur er áherslan meira á skreytingarnar og ég sýni aðferðir sem ég nota og deili hugmyndum sem mér finnst vera sniðugar. Ég föndra líka kökutoppa og sýni skref fyrir skref hvernig ég geri þá. Vonandi hefur fólk gaman af því sem ég geri og fær jafnvel innblástur af því að fylgjast með.“ Dögg ætlar með fjölskyldunni út úr bænum á páskunum ef veður leyfir. „Eða bara að njóta þess að eiga langa helgi heima. Við sjáum til hvernig veðrið verður. Það verður þó klárlega spilað bingó með krökkunum, það sló svo rækilega í gegn hjá þeim í samkomubanninu á páskunum í fyrra, að við munum endurtaka leikinn í ár.“

Páskakakan verður flóknari með árunum

Hvernig páskakökur gerir þú vanalega? „Ég gerði aldrei sérstakar páskakökur fyrr en kökuskreytingarnar urðu að sérstöku áhugamáli. Síðustu ár hafa þær verið skreyttar með bleiku og gulu kremi og litlum súkkulaðieggjum. Ég hef verið að þróa skreytingarnar og hafa útfærslurnar orðið flóknari með hverri köku.“

Dögg lítur á páskana sem tækifæri til að njóta samverunnar með fjölskyldunni. „Á páskunum getur maður dregið sig aðeins út úr amstri daglega lífsins og borðað góðan mat og páskaegg, svo ég tek páskunum fagnandi. Þessi tími þýðir líka að vorið er á næsta leiti og ég hlakka alltaf til að fá lengri daga og hækkandi sól.“ Að baka og skreyta kökur hefur lengi verið áhugamál Daggar. „Þegar ég útskrifaðist úr háskólanum bað ég um KitchenAid-hrærivél í gjöf frá mömmu og pabba sem ég svo flutti með mér yfir hafið út í masternám. Það var þó ekki fyrr en börnin komu til sögunnar þónokkuð mörgum árum seinna að ég fór að leika mér meira með kökuskreytingarnar og að halda barnaafmæli með hinu og þessu þema. Úr varð þessi áhugi á kökuskreytingum sem hefur svo bara aukist með árunum. Ég tengi þetta reyndar líka við áhuga minn á ýmiss konar handavinnu, en að skreyta köku er bara eitt formið af því að skapa eitthvað með höndum.“

Eiginmaðurinn eldar matinn á páskunum

Ólafur Þór, eiginmaður Daggar, sér um að elda á páskunum og býður hann vanalega upp á lambakjöt; ljúffengan hrygg eða læri. „Þegar ég var lítil þá var það hefð hjá mömmu og pabba á páskadag að fela páskaeggið mitt einhvers staðar heima og ég byrjaði daginn á því að leita að egginu. Ég man hvað mér þótti þetta alltaf skemmtilegt og þess vegna held ég í þessa hefð með börnunum mínum. Vonandi munu þau líka seinna eiga góðar páskaminningar um þetta.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: