Hundruð starfa við landeldi

Eldisker. Í Noregi og víðar um heim eru mikil áform …
Eldisker. Í Noregi og víðar um heim eru mikil áform um landeldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sveit­ar­fé­lagið Ölfus hef­ur út­hlutað þrem­ur stór­um lóðum fyr­ir strand­eld­is­stöðvar vest­an við Þor­láks­höfn og viðræður eru í gangi um þá fjórðu. Eitt fyr­ir­tækj­anna er komið með fisk í seiðastöð og hef­ur hafið fram­kvæmd­ir á lóð sinni. Meiri óvissa er með hin áformin.

Verði af þess­um áform­um og áformaðri stækk­un strand­eld­is­stöðva á Reykja­nesi munu skap­ast mögu­leik­ar til að fram­leiða allt að 80 þúsund tonn af laxi á ári en til sam­an­b­urðar má geta þess að áætlað er að fram­leiðsla í sjókvía­eld­is­stöðvum í ár verði um 40 þúsund tonn af laxi.

Fjár­fest­ing í mann­virkj­um, tækni og líf­massa einn­ar strand­eld­is­stöðvar er áætluð 15-20 millj­arðar króna. Myndu fram­kvæmd­irn­ar í Þor­láks­höfn, þar sem góðar aðstæður eru, skapa hundruð starfa og mik­il um­svif í sveit­ar­fé­lag­inu.

Norsk­ir fisk­eld­is­menn og fjár­fest­ar eru með afar stór áform um lax­eldi á landi, bæði í heima­land­inu og á stærstu markaðssvæðum heims. Verk­efn­in skipta tug­um og sum afar stór í sniðum. Vel hef­ur gengið að fjár­magna nokk­ur verk­efni við skrán­ingu fé­laga í kaup­höll­ina í Ósló. Flest eru verk­efn­in þó á hug­mynda- eða und­ir­bún­ings­stigi og þar sem stór­eldi er byrjað hafa komið upp marg­vís­leg­ir tækni­leg­ir byrj­unar­örðug­leik­ar, ekki síst við end­ur­nýt­ingu vatns.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: