Yfirvöld í Chicago í Bandaríkjunum hafa birt myndskeið úr líkamsmyndavél lögreglumanns sem sýnir þegar hann skýtur til bana 13 ára dreng af rómönskum uppruna.
Í myndskeiðinu sést táningurinn Adam Toledo á flótta undan lögreglunni 29. mars. Þegar hann stoppar og lyftir upp höndum er hann skotinn einu skoti í brjóstkassann.
Saksóknarar og lögreglan segja að hann hafi verið vopnaður en í myndskeiðinu sést að hann heldur ekki á byssu er hann var skotinn. Í myndskeiðinu sést aftur á móti þegar hann lætur eitthvað falla til jarðar á bak við girðingu áður en hann réttir upp hendurnar, sem gæti verið byssan sem hann er sagður hafa haldið á.
Rétt er að vara viðkvæma við myndskeiðinu:
Mikil ólga hefur verið í Bandaríkjunum að undanförnu vegna kynþáttahaturs og starfa lögreglunnar. Réttarhöld standa yfir í Minneapolis vegna hvíts fyrrverandi lögreglumanns sem er ákærður fyrir að hafa myrt George Floyd.
Á blaðamannafundi áður en myndskeiðið var birt sagðist Lori Lightfoot, borgarstjóri Chicago, vonast eftir friðsamlegum viðbrögðum frá íbúum borgarinnar og lýsti myndskeiðinu sem „átakanlegu á að horfa“.
Litlir hópar söfnuðust saman í miðborg Chicago til friðsamlegra mótmæla vegna atviksins.