Kristján Þór Júlísson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði í gær Mælaborð fiskeldis. Í mælaborðinu er greiðlega hægt að finna upplýsingar um framleiðslu, fjöldi fiska, fjöldi laxalúsa, rekstrarleyfi eldisfyrirtækja, staðsetningu eldissvæða og niðurstöðum eftirlits stofnunarinnar.
Fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins að markmið þess að útbúa mælaborðið sé að auka gagnsæi í starfsemi atvinnugreinarinnar og veita almenningi og hagsmunaaðilum hagnýtar upplýsingar um starfsemina.
„Með Mælaborði fiskeldis eru allar helstu upplýsingar um stöðu fiskeldis í sjó og á landi orðnar aðgengilegar á einum stað til hagsbóta fyrir almenning og stjórnvöld. Þetta tímamótaskref að stjórnvöld eigi frumkvæði að birtingu þessara upplýsinga er í samræmi við þá stefnumörkun við breytingu á lögum um fiskeldi 2019 að auka gagnsæi í starfsemi greinarinnar. Þessi birting tryggir um leið heildstæðari yfirsýn yfir stöðu og þróun greinarinnar, sem er mikilvægt fyrir alla hlutaðeigandi,“ er haft eftir Kristjáni Þór í tilkynningunni.
Mælaborðið má finna hér.