Forvalsútboð vegna rannsóknaskips í næsta mánuði

Þorsteinn Sigurðsson, nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir forvalsútboð vegna smíði nýs …
Þorsteinn Sigurðsson, nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir forvalsútboð vegna smíði nýs rannsóknaskips hefjast í næsta mánuði. mbl.is/Arnþór Birkisson

For­valsút­boð vegna smíði nýs rann­sókna­skips verður opnað í næsta mánuði og er gert ráð fyr­ir að Haf­rann­sókna­stofn­un fái nýtt skip af­hent 2023. Þetta er meðal þess sem fram kem­ur í viðtali við Þor­stein Sig­urðsson, nýj­an for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, í Morg­un­blaðinu í dag.

Alþingi samþykkti ein­róma á sér­stök­um hátíðar­fundi á Þing­völl­um sum­arið 2018 í til­efni 100 ára full­veldisaf­mæl­is að smíða nýtt haf­rann­sókna­skip í stað Bjarna Sæ­munds­son­ar sem er 51 árs. Samþykkt var að ríkið léti 3,5 millj­arða króna renna til hönn­un­ar og smíði nýja skips­ins.

„Það er gam­an að segja frá því að það sé búið að senda út í gegn­um Rík­is­kaup beiðni um for­valsút­boð sem verður opnað í næsta mánuði og út frá því verður haldið útboð með þeim sem telj­ast hæf­ir í for­val­inu,“ seg­ir Þor­steinn.

„Mik­illi vinnu er lokið vegna hönn­un­ar skips­ins en það verður spenn­andi verk­efni að taka við kefl­inu og fylgja því eft­ir. Við von­umst til að skipið verði klárt 2023,“ bæt­ir hann við.

Bjarni Sæmundsson var smíðaður árið 1970.
Bjarni Sæ­munds­son var smíðaður árið 1970. mbl.is/​Sisi
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: