Vill mæta gagnrýni með samtali

Þorsteinn Sigurðsson, nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar, kveðst hlakka til að takast …
Þorsteinn Sigurðsson, nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar, kveðst hlakka til að takast á við verkefnin sem bíða honum hjá stofnuninni. mbl.is/Arnþór Birkisson

„Ég hlakka mikið til, en er enn að koma mér inn í hlut­ina og er með starfs­fólk­inu að greina stöðuna. Það er fyrsta skrefið að átta sig á hvar við erum áður en við för­um skref­in áfram, en þetta er gríðarlega spenn­andi verk­efni,“ svar­ar Þor­steinn Sig­urðsson, sem skipaður var for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar frá og með 1. apríl, er blaðamaður spyr hvernig hon­um líki nýja starfið.

Þor­steinn hef­ur ávallt tengst haf­inu á einn eða ann­an hátt enda al­inn upp á Norðfirði og hóf sinn starfs­fer­il þar, bæði í frysti­húsi og salt­fisk­vinnslu. Mörg­um sumr­um eyddi hann á sjó á meðan hann var ung­ling­ur og í námi auk þess sem Þor­steinn var tvö ár á fiski­skip­um, bæði upp­sjáv­ar­skipi og tog­ara. „Það má segja að áhug­inn hafi vaknað þarna, sem síðar leiddi mig í líf­fræði í Há­skóla Íslands og þaðan í fram­halds­nám til Nor­egs í fiski­fræðum,“ seg­ir Þor­steinn sem er fiski­fræðing­ur með BS-gráðu í líf­fræði frá Há­skóla Íslands og cand. scient-gráðu frá Há­skól­an­um í Ber­gen.

Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar að störfum.
Starfs­menn Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að störf­um. Ljós­mynd/​Svan­hild­ur Eg­ils­dótt­ir

Hann hef­ur starfað um ára­bil hjá Haf­rann­sókna­stofn­un og hef­ur stundað rann­sókn­ir á karfa og upp­sjáv­ar­fisk­um. Þá leiddi Þor­steinn í 10 ár nytja­stofna­svið gömlu Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og upp­sjáv­ar­svið stofn­un­ar­inn­ar frá 2016 til 2019.

Hann seg­ir þekk­ing­una frá fyrri störf­um fyr­ir stofn­un­ina hjálpa sér mikið, en kveðst alls ekki þekkja allt og því mik­il­vægt að koma sér inn í mál­efni sem hann þekkti minna þegar hann tók til starfa sem for­stjóri. „Eins og mál­efni fisk­eld­is­ins, sem er gríðarlega mik­il­vægt mál­efni fyr­ir okk­ur öll, og mál­efni ferskvatns­fiska.“

Þorsteinn segir mikilvægt að tryggja góða kynningu á veiðiráðgjöf stofnunarinnar.
Þor­steinn seg­ir mik­il­vægt að tryggja góða kynn­ingu á veiðiráðgjöf stofn­un­ar­inn­ar. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar virðist alltaf fá mis­jafn­ar viðtök­ur enda mikl­ir hags­mun­ir í húfi. Spurður hvort slíkt sé óhjá­kvæmi­legt svar­ar Þor­steinn: „Það er auðvitað þannig með ráðgjöf sem bygg­ir á rann­sókn­um á ástandi stofna að það verða ávallt skipt­ar skoðanir á þeirri ráðgjöf. Ég er þeirr­ar skoðunar að við kynn­ingu á ráðgjöf megi auka kynn­ing­una þannig að þeir sem gagn­rýna ráðgjöf­ina sjái enn bet­ur hvað liggi þar að baki og hvaða aðferðafræði er beitt við ráðgjöf auðlinda hafs­ins.“

„Það er auðvitað þannig að þau gögn sem stofn­un­in er með til að und­ir­byggja ráðgjöf eru það um­fangs­mik­il að þau gefa miklu betri heild­ar­mynd af ástand­inu held­ur en ein­staka menn sem gagn­rýna ráðgjöf­ina hafa. Þannig að það er stund­um erfitt að tækla alla gagn­rýn­ina en við mun­um í framtíðinni, eins og gert hef­ur verið, leit­ast við að eiga virkt sam­tal,“ seg­ir hann.

Vilja meira en fjár­magn leyf­ir

Haf­rann­sókna­stofn­un býr yfir tveim­ur rann­sókna­skip­um og er Árni Friðriks­son það yngra og var skipið smíðað árið 2000 í Síle, en Bjarni Sæ­munds­son er tölu­vert eldra skip og var smíðað 1970 í Brem­er­haven í Þýskalandi.

„Það er sem bet­ur fer verið að end­ur­nýja gamla Bjarna Sæ­munds­son sem er kom­inn á sex­tugs­ald­ur­inn. Það er gam­an að segja frá því að það sé búið að senda út í gegn­um Rík­is­kaup beiðni um for­valsút­boð sem verður opnað í næsta mánuði og út frá því verður haldið útboð með þeim sem telj­ast hæf­ir í for­val­inu. [...] Mik­illi vinnu er lokið vegna hönn­un­ar skips­ins en það verður spenn­andi verk­efni að taka við kefl­inu og fylgja því eft­ir. Við von­umst til að skipið verði klárt 2023,“ seg­ir Þor­steinn um skipa­kost stofn­un­ar­inn­ar.

Þá seg­ir hann fleiri áskor­an­ir á sjón­deild­ar­hringn­um. „Við erum, eins og aðrar rík­is­stofn­an­ir, að glíma við það að menn vilja gera miklu meira en fjár­magn leyf­ir og þess vegna eru fyrstu skref­in að greina stöðuna svo við get­um fylgt þeim ramma sem fjár­lög­in setja okk­ur. Á sama tíma þurfi að efla eins og kost­ur er sam­starf við syst­ur­stofn­an­ir og há­skóla auk þess sem sækja þarf áfram í sam­keppn­is­sjóði til að efla rann­sókn­ir.“

Bjarni Sæmundsson leggst að bryggju í Hafnarfirði við nýjar höfuðstöðvar …
Bjarni Sæ­munds­son leggst að bryggju í Hafnar­f­irði við nýj­ar höfuðstöðvar Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

„Það má ekki gleyma því að það eru gríðarleg­ar áskor­an­ir sem við stönd­um frammi fyr­ir sem þjóð í tengsl­um við lofts­lags­breyt­ing­ar sem eru að eiga sér stað. Það er stórt verk­efni og mik­ill vilji starfs­manna hér að tak­ast á við. Við ger­um það með grunn­rann­sókn­um og vökt­un.“ Bend­ir Þor­steinn á að þegar hafa orðið breyt­ing­ar í haf­inu sem hafa haft áhrif á land og þjóð og vís­ar til þess hvernig út­breiðsla loðnunn­ar hef­ur breyst auk annarra teg­unda.

Stofn­un­in vinn­ur nú að sam­an­tekt um um­hverf­is- og vist­kerf­is­breyt­ing­ar í haf­inu um­hverf­is Ísland og mögu­leg­ar sviðsmynd­ir eða af­leiðing­ar áhrifa lofts­lags­breyt­inga.

Vill skapa traust

„Ágrein­ing­ur inn­an stofn­un­ar­inn­ar var áber­andi und­ir lok árs 2019. Það er mín von og mín trú að þau mál séu leyst og að ekki þurfi að glíma við slík mál inn í framtíðina,“ svar­ar Þor­steinn spurður um stöðu mannauðsmá­la. Þá sé það ósk hans að hægt verði að stuðla að enn meiri starfs­ánægju þar sem traust og virðing séu höfð í há­veg­um.

„Ég fékk mjög góðar viðtök­ur þegar ég mætti til starfa eft­ir páska og horfi björt­um aug­um til framtíðar­inn­ar og starf­sem­inn­ar, hvort sem er í rann­sókn­um á ferskvatni, eldi eða haf­inu um­hverf­is landið. Verk­efn­in eru næg og við finn­um til ábyrgðar að sinna þeim sem best. Þetta er því­lík­ur mannauður sem á stofn­un­inni starfar og ég hlakka til að tak­ast á við verk­efn­in með þeim öll­um.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: