Nýir neytendur komist á bragðið

Mikilar verðsveiflur hafa verið í markaðsverði á eldislaxi og má …
Mikilar verðsveiflur hafa verið í markaðsverði á eldislaxi og má búast við að það verði áfram tilfellið. mbl.is/Helgi Bjarnason

Verð á laxi hef­ur náð sér á strik und­an­farn­ar vik­ur og hef­ur hald­ist nokkuð stöðugt þrátt fyr­ir að áhrifa kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins gæti enn. Verðið er tals­vert hærra en var á sama tíma á síðasta ári, en þá hafði orðið verðfall vegna veirunn­ar, og er vel yfir meðal­verði síðasta ára­tug­ar. Þótt bú­ast megi við lækk­un í sum­ar, eins og oft­ast ger­ist vegna auk­ins fram­boðs og minni eft­ir­spurn­ar, eru eld­is­menn bjart­sýn­ir um þróun verðsins.

Ástæðan fyr­ir bjart­sýni um þró­un­ina er að minni líf­massi virðist vera í sjókví­um í Nor­egi og Chile en áætlað hef­ur verið. Þá hef­ur auk­in spurn eft­ir laxi á und­an­förn­um árum ekki haft við enn meiri aukn­ingu í eft­ir­spurn. Jafn­framt er bú­ist við að betra ár­ferði verði í viðskipta­lönd­um en verið hef­ur, svo sem í Bretlandi, Banda­ríkj­un­um, Kína og Evr­ópu­lönd­um.

Eins og sjá má á meðfylgj­andi línu­riti var meðal­verð á laxi um 43-45 norsk­ar krón­ur á fyrstu vik­um árs­ins en fór upp í tæp­ar 70 krón­ur í 13. viku og er nú í rúm­um 60 krón­um. 60 norsk­ar krón­ur sam­svara um 900 krón­um ís­lensk­um. Þá má sjá að verðið var mjög hátt í byrj­un árs 2020 en lækkaði snar­lega þegar kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn reið yfir. Þró­un­in í ár hef­ur verið þver­öfug og í mars komst verðið yfir það sem var á sama tíma á síðasta ári. Verðið hef­ur í raun hækkað meira í evr­um reiknað vegna þess að norska krón­an hef­ur verið að hækka.

Ef litið er á fram­virka verðið sem get­ur gefið vís­bend­ing­ar um þró­un­ina næsta árið má sjá að þró­un­in gæti orðið svipuð og oft hef­ur verið í venju­legu ári. Verðið lækk­ar í sum­ar og hækk­ar aft­ur fyr­ir jól­in og nær svipaðri stöðu og nú á fyrstu tveim­ur fjórðung­um næsta árs.

Viðbrögðin mögnuð

Guðmund­ur Gísla­son, stjórn­ar­formaður Fisk­eld­is Aust­fjarða, seg­ir alltaf erfitt að spá fyr­ir um eft­ir­spurn og verðþróun. Hann seg­ir þó að aðlög­un markaðar­ins við því þegar veit­inga­stöðum var lokað í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um og nærri helm­ing­ur markaðar­ins hvarf lofi góðu. Viðbrögðin hafi verið mögnuð. Auk­in áhersla hafi verið á að fram­leiða vör­ur í neyt­endapakkn­ing­um fyr­ir stór­markaði og þar hafi nýir neyt­end­ur að laxi kom­ist á bragðið.

Tel­ur Guðmund­ur að þegar kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn verður liðinn hjá megi bú­ast við mik­illi spurn eft­ir laxi.

Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður Fiskeldis Austfjarða.
Guðmund­ur Gísla­son, stjórn­ar­formaður Fisk­eld­is Aust­fjarða. Mynd / Fisk­eldi Aust­fjarða

Haldið áfram í Beruf­irði

Fisk­eldi Aust­fjarða held­ur sínu striki og set­ur geld­an lax í sjókví­ar í Beruf­irði í vor, þrátt fyr­ir að bak­slag hafi komið í eldi á þrílitna laxi í Nor­egi.

Norway Royal Salmon (NRS) til­kynnti í gær að fyr­ir­tækið hefði ákveðið að hætta eldi á þrílitna geld­um laxi vegna vel­ferðar laxa. Fyr­ir­tækið fékk níu svo­kölluð græn eld­is­leyfi sem veitt eru með skil­yrðum sem ætlað er að þróa fisk­eld­isiðnaðinn í átt­ina að sjálf­bærni og breytti níu al­menn­um leyf­um til viðbót­ar í græn. Við eldið hef­ur verið staðfest að þrílitna lax­inn virðist varn­ar­laus­ari fyr­ir bakt­eríu- og veiru­sjúk­dóm­um en ógelt­ur lax. Norska mat­væla­stofn­un­in hef­ur ákveðið að banna nýtt eldi á þrílitna laxi frá næsta vori og að fram­leiðslu skuli hætt fyr­ir lok árs 2023.

Guðmund­ur seg­ir eldi á þrílitna laxi aldrei hafa verið prófað á Íslandi. Miðað við þær for­send­ur sem fyr­ir liggi, m.a. um kald­ari sjó og minni hita­sveifl­ur á Aust­fjörðum en í Norður-Nor­egi og minna um­hverf­is­áreiti, ætti það að ganga vel.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: