2,5 milljarða velta hjá Arctic Fish

Arctic Fish átti góðan ársfjórðung í byrjun árs og setti …
Arctic Fish átti góðan ársfjórðung í byrjun árs og setti met í veltu og seldu magni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Velta fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish á fyrsta árs­fjórðungi nam um 2,5 millj­örðum króna og seld­ust 3.793 tonn sem bæði eru met í sögu fyr­ir­tæk­is­ins, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu frá Arctic Fish.

Af­kom­an án greiðslu vaxta og skatta nam 271,12 millj­ón­um og var 85 krón­ur á hvert selt kíló. Um er að ræða viðsnún­ing frá fyrri árs­fjórðungi. „Fyrri fjórðung­ar, sér í lagi ann­ar, þriðji og fjórði fjórðung­ur síðastliðins árs voru erfiðir í markaðslegu til­liti og voru laxa­verð lág en hækkuðu nú frá síðasta fjórðungi. Markaðsþró­un­in og gæðin á seld­um afurðum höfðu já­kvæð áhrif á skila­verðin í fjórðungn­um,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Í fe­brú­ar fór fram hluta­fjárút­boðs nýs hluta­fjár fyr­ir um 5,1 millj­arð króna og var fé­lagið skráð á Euronext markaðinn í norsku kaup­höll­inni. Lækkuðu vaxta­ber­andi skuld­ir í 1,6 millj­arða króna og nam eig­in­fjár­hlut­fallið við lok árs­fjórðungs­ins 62%.

„Þá var sett­ur auk­inn kraft­ur í að hanna og und­ir­búa vaxt­ar verk­efni fé­lags­ins sem snúa að stækk­un á seiðaeld­is­stöð og aukn­ingu í af­kasta­getu við slátrun og vinnslu. Áætlað er að jarðvegs­fram­kvæmd­ir við stækk­un seiðaeld­is­stöðvar­inn­ar hefj­ist seint í öðrum árs­fjórðungi,“ seg­ir í til­kynn­ingu fé­lags­ins.

Arctic Fish hef­ur þegar fengið út­hlutuð rekstr­ar­leyfi fyr­ir 23.100 tonn­um og hafa verið af­hent­ar um­sókn­ir fyr­ir 8.800 tonn­um til viðbót­ar sem gert er ráð fyr­ir að verði út­hlutað á næsta ári. Leyf­in skipt­ast í 17.800 tonn af laxi og 5.300 tonn af sil­ung, en stefnt er að því að breyta leyf­um fyr­ir sil­ung í lax á ár­inu 2021. Þá ger­ir fyr­ir­tækið ráð fyr­ir 12.00 tonna upp­skeru á þessu ári.

mbl.is