Átta vilja smíða nýjan Bjarna Sæmundsson

Bjarni Sæmundsson við bryggju við höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði. skipið …
Bjarni Sæmundsson við bryggju við höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði. skipið er komið ti ára sinna og vilja átta bjóða í smíði nýs skips. mbl.is/sisi

Átta skipa­smíðastöðvar hafa lýst áhuga á að taka þátt í útboði vegna smíði á nýju rann­sókna­skipi sem mun leysa Bjarna Sæ­munds­son, sem nú er orðinn 51 árs, af hólmi. Þetta er niðurstaða forút­boðs sem Rík­is­kaup opnaði 5. maí og gerði Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, grein fyr­ir mál­inu á fundi rík­is­stjórn­ar­inn­ar í morg­un, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðsins.

Þar seg­ir að gert sé ráð fyr­ir að samið verði um smíði skips­ins fyr­ir 1. nóv­em­ber og að smíði geti haf­ist í kjöl­farið, en smíðatím­inn er áætlaður tvö ár og kem­ur skipið lík­leg­ast til lands­ins á síðari hluta 2023.

„Gert er ráð fyr­ir svo­kölluðu sam­keppn­isút­boði sem gef­ur mögu­leika á viðræðum við boðend­ur og aðlög­un vegna til­boða. Sam­hliða því að unnið er að hæfn­ismati á skipa­smíðastöðvun­um. Þegar þeirri vinnu verður lokið mun útboð um smíði skips­ins fara fram og þær stöðvar sem stand­ast hæfn­ismat fá að taka þátt í því útboði,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Útboðsferlið hefst fyrsta júní með út­send­ingu gagna og verður opnað fyr­ir útboð um tveim­ur mánuðum síðar. Þá er áætlað að það taki um tvo til þrjá mánuði að vinna úr þeim til­boðum sem ber­ast í verkið. Að því loknu verður gengið til samn­inga um smíði skips­ins.

„Við hönn­un á nýju rann­sókna­skipi fyr­ir Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur verið horft til ým­issa leiða til að draga úr notk­un jarðefna­eldsneyt­is. Hægt verður að brenna líf­dísil (t.d. repju­olíu) og er þeim mögu­leika haldið opn­um í hönn­un að gera ráð fyr­ir plássi fyr­ir búnaði sem þarf til ef hent­ug­ar vél­ar til brennslu met­anóls verði komn­ar í fram­leiðslu á smíðatím­an­um. Inn­an skips verður leitað allra leiða til að spara orku. Til lýs­ing­ar er notuð LED tækni, spil­búnaður skips­ins verður raf­drif­inn, til upp­hit­un­ar verður notuð af­gangs­orka frá kæli­vatni aðal­véla og vist­ar­ver­um skipt upp þannig að ein­ung­is verði loftræst­ar þær sem eru í notk­un hverju sinni. Skipið verður við landraf­magn og gert er ráð fyr­ir að sett­ir verði upp varma­skipt­ar í heima­höfn skips­ins þannig að skipið verði hitað upp með vatni frá hita­veitu,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni á vef stjórn­ar­ráðsins.

mbl.is