Hafró birti rannsóknargögn án leyfis

Hafró flytur til Hafnafjarðar.
Hafró flytur til Hafnafjarðar. mbl.is/Árni Sæberg

Notk­un Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á rann­sókn­ar­gögn­um ein­stak­lings og birt­ing upp­lýs­inga úr þeim í frétt á vefsíðu stofn­un­ar­inn­ar, án þess að geta hvaðan gögn­in voru kom­in eða fá leyfi hans, sam­rýmd­ist ekki lög­um og vönduðum stjórn­sýslu­hátt­um.

Þetta kem­ur fram í áliti setts umboðsmanns vegna kvört­un­ar yfir starfs­hátt­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Þá gerði sett­ur umboðsmaður at­huga­semd­ir við svör Haf­rann­sókna­stofn­un­ar til umboðsmanns og kom þeirri ábend­ingu á fram­færi að þau yrðu fram­veg­is bet­ur úr garði gerð.

Rann­sókn­ar­gögn­in lutu að upp­runa­grein­ingu strokulaxa sem Matís ohf. hafði greint fyr­ir hann og Haf­rann­sókna­stofn­un birti með eig­in upp­lýs­ing­um um upp­runa­grein­ingu strokulaxa. Til að greina lax­ana notaði Matís viðmiðun­ar­gögn frá Haf­rann­sókna­stofn­un og upp­lýsti síðan stofn­un­ina um niður­stöður sín­ar, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: