Rannsaka röðun laxeldisleyfa

Sjókvíar. Laxeldi er mikilvæguratvinnuvegur á Vestfjörðum.
Sjókvíar. Laxeldi er mikilvæguratvinnuvegur á Vestfjörðum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Vinnsla um­sókna um rekstr­ar­leyfi til lax­eld­is í Ísa­fjarðar­djúpi er kom­in í bið. Ástæðan er at­huga­semd eins fyr­ir­tæk­is­ins, Arn­ar­lax, við til­lögu að rekstr­ar­leyfi fyr­ir annað, Háa­fell, dótt­ur­fé­lag Hraðfrysti­húss­ins – Gunn­var­ar, sem Mat­væla­stofn­un aug­lýsti í byrj­un mars.

Mat­væla­stofn­un ákvað að verða við kröfu Arn­ar­lax um að rann­saka hvort Skipu­lags­stofn­un hefði af­greitt mats­skýrsl­ur fyr­ir­tækj­anna vegna um­hverf­is­mats í réttri röð.

Heim­ilt er að vera með allt að 12 þúsund tonna líf­massa af frjó­um laxi í sjókví­um í Ísa­fjarðar­djúpi. Það var leyft eft­ir að stjórn­völd afléttu banni við lax­eldi þar vegna hættu á erfðameng­un laxa­stofna.

Fjög­ur fyr­ir­tæki höfðu áform um að nýta þess­ar heim­ild­ir og hafa þrjú þeirra lokið um­hverf­is­mati. Þau sækja um alls tæp­lega 31 þúsund tonn af laxi og fyr­ir­tæk­in þrjú sem koma til greina sækja sam­tals um tæp­lega 25 þúsund tonn eða tvö­falt það magn sem áhættumat heim­il­ar, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: