Felldu leyfi Laxa ehf. úr gildi

Þjónustubátur Laxa, Aqua Reflex, við kvíarnar í sunnanverðum Reyðarfirði.
Þjónustubátur Laxa, Aqua Reflex, við kvíarnar í sunnanverðum Reyðarfirði. Ljósmynd/Köfunarþjónustan

Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála felldi úr gildi rekstr­ar­leyfi Laxa eign­ar­halds­fé­lags ehf. fyr­ir kyn­slóðaskiptu sjókvía­eldi á laxi með 10 þúsund tonna há­marks­líf­massa í Reyðarf­irði.

Kær­andi veit­ing­ar leyf­is­ins var fyrst Lands­sam­band veiðifé­laga, en síðar bætt­ust við kær­ur frá Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­um Íslands, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­un­um Lax­inn lifi og veiðifé­lög­um Breiðdæl­inga, Hofs­ár, Sunn­an­dals­ár, Selár og Vest­ur­dals­ár.

Úrsk­urðaði nefnd­in að Mat­væla­stofn­un hefði ekki lagt álit Skipu­lags­stofn­un­ar um mat á um­hverf­isáhrif­um til grund­vall­ar leyf­inu þar sem Mat­væla­stofn­un skil­yrti leyfið við lág­marks­stærð seiða um 56 grömm í stað 200 gramma.

„Kannaði Mat­væla­stofn­un ekki með full­nægj­andi hætti hvort sú breyt­ing gæti haft áhrif, en það var for­senda þess að stofn­un­in gæti tekið ákvörðun um að víkja frá eða breyta því skil­yrði sem lagt var til af hálfu Skipu­lags­stofn­un­ar,“ seg­ir í úr­sk­urði nefnd­ar­inn­ar. Þrír nefnd­ar­menn skrifa und­ir úr­sk­urðinn en tveir nefnd­ar­menn skiluðu séráliti.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: