Fjölskyldu og tónlistarhátíðin Kótelettan verður haldin á Selfossi í 11. skipti nú í sumar. Hátíðin átti að fara fram dagana 11.-13. júní n.k. en í ljósi gildandi sóttvarnalaga mun ekki vera hægt að halda hátíðina á tilsettum tíma.
Þess í stað hefur verið ákveðið að færa hana aftur um mánuð þ.s. fram til 9.-11. júlí, þegar öllum takmörkunum innanlands hefur verið aflétt eins og varfærin áætlun stjórnvalda hefur kveðið á um.
Mikil eftirvænting er hjá hátíðarhöldunum og er undirbúningur hátíðarinnar vel á veg komin. ,,Að venju verður öllu til tjaldað enda finnum við fyrir mikilli eftirvæntingu í samfélaginu,” segir Einar Björnsson, framkvæmdarstjóri hátíðarinnar.