Laxar fiskeldi hafa sótt um bráðabirgðaleyfi til atvinnuvegaráðuneytisins til að hefja eldi á laxi í Reyðarfirði, á þeim staðsetningum sem úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ógilti fyrir skömmu vegna þess sem nefndin taldi Matvælastofnun hafa gert mistök við útgáfu leyfisins.
Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis, segir að sótt sé um leyfið til að eiga möguleika á að koma seiðunum út í sjó þegar þau verða tilbúin, ef nýtt leyfi Matvælastofnunar verði ekki komið þá.
Matvælastofnun hefur auglýst tillögu að nýju rekstrarleyfi fyrir 10 þúsund tonna viðbótareldi Laxa þar sem tekið er tillit til athugasemda úrskurðarnefndarinnar. Þar er gefinn kostur á athugasemdum og síðan hefur stofnunin frest til að vinna úr hugsanlegum athugasemdum. Því er ekki hægt að fullyrða hvenær leyfið verður gefið út. Það gæti dregist fram í júlí eða lengur en seiðin verða tilbúin seinnihluta júnímánaðar, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.