Laxeldi kynnt fyrir forsetahjónunum

Forsetahjónin voru kynnt fyrir starfsemi Laxar fiskeldi & Landeldi.
Forsetahjónin voru kynnt fyrir starfsemi Laxar fiskeldi & Landeldi. Kristinn Magnússon

„Hér kynnt­um við okk­ur fisk­eldi, bæði land­eldi og fisk­eldi í sjó,“ sagði Guðni Th. Jó­hann­es­son, for­seti, við blaðamann mbl.is í op­in­berri heim­sókn sinni í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfus í dag. Þá var El­iza Reid, for­setafrú, einnig viðstödd heim­sókn­ina og var um að ræða þétta dag­skrá.

Lax­ar fisk­eldi og Land­eldi stóðu fyr­ir kynn­ing­unni og tók þar fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Jens Garðar Helga­son, á móti for­seta­hjón­un­um. Ásamt þeim Ingólfi Snorra­syni og Hall­dóri Ólafi Hall­dórs­syni frá Land­eldi. Þá var einnig starfs­fólk beggja fyr­ir­tækja á staðnum.

mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

„Hér er auðvitað mikið land­flæmi en það er sjór á aðra hönd og und­ir­lendi á hina og gott aðgengi að vatni. Góðar for­send­ur til þess að sinna þess­um þætti á um­hverf­i­s­væn­an og vist­væn­an hátt eins og for­ráðamenn fyr­ir­tækja hér og for­ystu­sveit sveit­ar­fé­lags­ins lagði mikla áherslu á og við hlýdd­um á,“ sagði hann. „Áhersla á að gjör­nýta allt sem til fell­ur verður að vera leiðarljós til þess að at­vinnu­veg­ur­inn sé vist­vænn, það er frum­for­senda sem verður að fylgja.“

Þá sagði for­setafrú­in að það hafi verið gam­an að fá að skoða lax­eldið og sjá í ker­un­um fisk í þúsunda­tali. „Hann Ingólf­ur sagði við mig að það þarf að muna að fisk­arn­ir eru ein­stak­ling­ar líka og mér finnst það fal­leg hugs­un,“ sagði hún.

Forsetahjónin stóðu yfir kerunum þar sem fiskar eru í þúsundatali.
For­seta­hjón­in stóðu yfir ker­un­um þar sem fisk­ar eru í þúsunda­tali. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Lax­eldið sýn­ir hvað ís­lenskt hug­vit get­ur gert

„Við byrjuðum dag­inn á því að fara í Her­dís­ar­vík sem er dá­lítið upp­takt­ur­inn á því sem við erum að gera núna en þar bjó sá ís­lend­ing­ur sem hef­ur senni­lega haft há­leit­ustu hug­mynd­irn­ar um framtíðina, Ein­ar Bene­dikts­son, skáld. Þaðan fór­um við yfir í lax­eldið sem sýn­ir fram á hvað ís­lenskt hug­vit get­ur gert þegar marg­ir leggj­ast á við eitt við það að nota okk­ar nátt­úru­auðlind­ir.

mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is