Flateyri og Patreksfjörður koma til greina

Bíldudalur. Laxi pakkað fyrir Evrópumarkað í sláturhúsi Arnarlax.
Bíldudalur. Laxi pakkað fyrir Evrópumarkað í sláturhúsi Arnarlax. mbl.is/Helgi Bjarnason

Vest­firsku fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in Arctic Fish og Arn­ar­lax vinna að und­ir­bún­ingi bygg­ing­ar sam­eig­in­legs laxaslát­ur­húss. Hafa þau leitað upp­lýs­inga um innviði og aðstöðu til að koma slíkri aðstöðu upp á Pat­reks­firði og Flat­eyri og ef til vill víðar.

Bæði fyr­ir­tæk­in nýta laxaslát­ur­hús Arn­ar­lax á Bíldu­dal. Eldið er að vaxa mikið og þörf á betri aðstöðu. Fram­leiðslan mun aukast enn frek­ar þegar lax­eldi hefst í Ísa­fjarðar­djúpi.

Litið er til ým­issa þátta við staðar­valið, meðal ann­ars þjón­ustu og innviða á þeim stöðum sem til greina koma. Þá er það skil­yrði að lax­eldi sé ekki of ná­lægt slát­ur­húsi, vegna hættu á að sjúk­dóm­ar breiðist út.

Bæj­ar­stjór­inn á Ísaf­irði hef­ur verið að safna upp­lýs­ing­um til að svara fyr­ir­spurn Arn­ar­lax og Arctic Fish um aðstöðu fyr­ir laxaslát­ur­hús á Flat­eyri. Tók málið þá stefnu á síðasta fundi bæj­ar­stjórn­ar að bæj­ar­stjóra var falið að ganga til viðræðna við fyr­ir­tæk­in, að því er fram kem­ur  í Morg­unbaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: