Farbann staðfest í Landsrétti

Landsréttur hefur staðfest farbann til 1. október 2021 yfir eins …
Landsréttur hefur staðfest farbann til 1. október 2021 yfir eins þeirra grunuðu í Rauðagerðismálinu. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Lands­rétt­ur hef­ur staðfest far­bann til 1. októ­ber 2021 yfir eins þeirra grunuðu í Rauðagerðismál­inu.

Maður­inn sem um ræðir var, ásamt þrem­ur öðrum, ákærður fyr­ir mann­dráp í Rauðagerði hinn 13. fe­brú­ar. Héraðssak­sókn­ari höfðaði til máls­ins þann 11. maí og stend­ur það enn yfir.

mbl.is