Fiskeldisfyrirtækið Hábrún hf. í Hnífsdal hefur misst af tækifærum til að byggja sig áfram upp í Ísafjarðardjúpi vegna þess að Skipulagsstofnun afgreiddi ekki innan tilskilins frests tillögu hennar að matsáætlun fyrir 11.500 tonna eldi.
Að sögn talsmanna fyrirtækisins hefur verið brotið á rétti þess með því og ekki síður með breytingum á gildistökuákvæðum lagabreytinga á árinu 2019 en sleifarlag var við þá vinnu, að mati lögmanns félagsins. Fyrirtækið nýtir nú síðbúna kæruleið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Hábrún hefur lengi verið með fiskeldi í Ísafjarðardjúpi og er einn af frumkvöðlunum í því. Það vildi taka þátt í kapphlaupinu um aðgang að Djúpinu, þegar opnað yrði fyrir eldi þar. Hóf vinnu við umhverfismat á 11.500 tonna eldi á laxi og regnbogasilungi og sótti um rekstrarleyfi til Matvælastofnunar, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.
Hábrún skilaði lokatillögu að matsáætlun fyrir stækkunina til Skipulagsstofnunar 24. maí 2019 og hafði þá verið tekið tillit til ábendinga stofnunarinnar. Talsmenn fyrirtækisins benda á að Skipulagsstofnun hafi borið að taka afstöðu til tillögunnar innan fjögurra vikna þannig að fyrirtækið gæti haldið áfram með matsvinnuna og skilað inn skýrslum.