Milljarðar í þaravinnslu

Áformað er að sækjaþara í þaraskóg við Húsavík.
Áformað er að sækjaþara í þaraskóg við Húsavík. mbl.is/Erlendur Bogason

Snæ­björn Sig­urðar­son, verk­efna­stjóri Íslandsþara, seg­ir full­trúa fyr­ir­tæk­is­ins farna að sjá til lands varðandi fyr­ir­hugaða verk­smiðju. Rætt hef­ur verið um að fjár­fest­ing­in sé á þriðja millj­arð króna.

Áformað er að hefja fram­kvæmd­ir við verk­smiðju á Húsa­vík næsta vor og verður jarðhiti notaður til að þurrka þarann við vinnsl­una.

Úr þar­an­um verða unn­in efni sem ætl­un­in er að selja til fram­leiðslu á fæðubót­ar­efn­um, snyrti­vör­um og öðrum vör­um. Varðandi sölu­hliðina seg­ir Snæ­björn að full­trú­ar Íslandsþara séu í sam­starfi við er­lenda aðila sem hafi góðar teng­ing­ar á markaði í Evr­ópu, Banda­ríkj­un­um og Asíu.

Í um­fjöll­un um mál þessi í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir Þór Sig­fús­son, stofn­andi Sjáv­ar­klas­ans, mörg áhuga­verð verk­efni í gangi varðandi þara­skóga. Raun­ar hlaupi fjöldi sprota­fyr­ir­tækja á þessu sviði á tug­um.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: