Fyrsta flugvél Play hefur verið máluð í „keppnislitunum“. Von er á vélinni til landsins í mánuðinum, en fyrsta áætlunarflug flugfélagsins verður til Lundúna 24. júní.
Play hóf sölu á flugmiðum til sjö áfangastaða í Evrópu 18. maí. Félagið mun fljúga til Lundúna, Alicante, Barcelona, Berlínar, Kaupmannahafnar, París og Tenerife. Flug á aðra áfangastaði en Lundúnir hefst í júlí.
Í flugþota Play verða alls þrjár Airbus A321neo-farþegaþotur fyrir 192 farþega. Sú fyrsta, TF-AEW, verður tekin í notkun eins og áður sagði 24. júní en hinar eru væntanlegar í júlí. Allar flugvélarnar eru í eigu AerCap.