Brynhildur Karlsdóttir söngkona og Matthías Tryggvi Haraldsson, leikskáld og söngvari, eru ástfangin upp fyrir haus. Ljósmynd birtist af þeim í gær í afmæli Brynhildar.
Parið ættu flestir að kannast við en Brynhildur er vinsæl söngkona Hormóna og Matthías sló eftirminnilega í gegn með hljómsveitinni Hatara sem fór fyrir Íslands hönd til Ísraels í Euorovision árið 2019. Hann hefur starfað sem leikhússkáld Borgarleikhússins og hún hefur starfað sem aðstoðarmaður leikstjóra í Þjóðleikhúsinu.
Smartland óskar parinu innilega til hamingju með lífið.