Leggja til myndarlega aukningu í síld og ýsu

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að 104% meira verði veitt af síld. Stofninn …
Hafrannsóknastofnun ráðleggur að 104% meira verði veitt af síld. Stofninn hefru náð sér vel eftir að hafa barist við sýkingar undanfarin ár. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Þrátt fyr­ir að Haf­rann­sókna­stofn­un hafi fært frétt­ir af tölu­vert minni þorsk­stofni í morg­un gat stofn­un­in kynnt já­kvæðar frétt­ir af öðrum nytja­stofn­um Íslend­inga, svo sem ýsu og síld.

Stofn­un­in legg­ur til að út­gefið afla­mark í síld verði 72.239 tonn sem er 104% aukn­ing frá fyrra ári er ráðgjöf­in nam 35.490 tonn­um. Fram kom í kynn­ingu Haf­rann­sókna­stofn­un­ar í morg­un að aukn­ing­una mætti rekja til sterks 2017-ár­gangs sem komi inn í veiðistofn­inn nú, en stofn­inn hafði minnkað ört vegna icht­hyoph­onus-sýk­ing­ar 2009 til 2010 og 2016. Þá tel­ur stofn­un­in horf­urn­ar góðar þar sem 2018-ár­gang­ur­inn sé einnig sterk­ur.

Ráðgjöf í ýsu eykst um 11% úr 45.389 tonn­um í 50.429 tonn. Árgang­ar 2015 til 2017 eru sagðir ná­lægt meðaltali en 2018-ár­gang­ur lé­leg­ur og er út­lit fyr­ir fyr­ir að stofn­inn stækki á næstu árum. Mæl­ing­ar benda til að ár­gang­ar 2019 til 2020 verði yfir meðallagi.

Um þúsund tonna sam­drátt­ur er í ufsa og nem­ur ráðgjöf 77.531 tonni. Óvissa er um þróun stofn­stærðar á næstu árum, en minna hef­ur verið veitt af teg­und­inni en það sem hef­ur verið gefið út í afla­marki und­an­far­in ár.

Breytingin í ráðgjöf fyrir ufsa nemur aðeins rúmt 1%.
Breyt­ing­in í ráðgjöf fyr­ir ufsa nem­ur aðeins rúmt 1%. mbl.is/​Rax

Bú­ast má við minnk­andi stofni grá­lúðu og nem­ur ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar 26.650 tonn­um sem er 13% aukn­ing frá fyrra ári. Um er að ræða deili­stofn og veiða Íslend­ing­ar 56,4% af út­gefnu afla­marki sam­kvæmt sam­komu­lagi við Græn­lend­inga.

Ekki eru góðar horf­ur hvað gull­karf­ann varðar og eru það ár­gang­arn­ir 2000 til 2005 sem halda uppi veiðum. Árgang­arn­ir sem fylgja eru held­ur lé­leg­ir og legg­ur Haf­rann­sókna­stofn­un til að ekki verði veitt meira af teg­und­inni en sem nem­ur 31.855 tonn­um sem er 17% minna en ráðlagt var fyr­ir yf­ir­stand­andi veiðiár. Íslend­ing­ar veiða 90% af út­gefnu afla­marki í þess­um stofni, en Græn­lend­ing­ar 10%.

mbl.is