Töluverð frávik í mati Hafró – þorskstofninn minni

Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs, lýsti frávikum í stofnmati Hafrannsóknastofnunar undanfarin …
Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs, lýsti frávikum í stofnmati Hafrannsóknastofnunar undanfarin ár. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Stærð þorsk­stofns­ins hef­ur verið of­met­inn og veiðihlut­fall því van­metið á und­an­förn­um árum auk þess sem nýliðun hef­ur verið of­met­in á síðustu árum, að því er fram kom í kynn­ingu Guðmund­ar Þórðar­son­ar, sviðsstjóra botnsjáv­ar­sviðs, á ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar fyr­ir fisk­veiðiárið 2021/​2022 í morg­un.

Þar var vak­in at­hygli á að við „end­ur­skoðun á stofn­mati í kjöl­far end­ur­mats á afla­reglu var upp­setn­ingu stofn­mats breytt“. Þá kom í ljós að viðmiðun­ar­stofn­inn sem tal­inn var í fyrra vera 1.208 þúsund tonn hafi raun­ar verið 19% minni eða 982 þúsund tonn. Stofn­inn er nú tal­inn vera 941 þúsund tonn og sam­drátt­ur því 4,8% milli ára eða 22% miðað við stofn­matið fyr­ir leiðrétt­ingu.

Legg­ur Haf­rann­sókna­stofn­un því til að ekki verði veitt meira en 222.373 tonn af þorski á fisk­veiðiár­inu 2021/​2022. Það er 13% lækk­un frá ráðgjöf stofn­un­ar­inn­ar í fyrra fyr­ir yf­ir­stand­andi fisk­veiðiár, en þá nam hún 256.593 tonn­um.

Viðmiðun­ar­stofn í þorski er met­inn á 941 þúsund tonn en var met­inn 1.208 þúsund árið 2020 og minnk­ar hann því um 22% milli ára. Hann lækk­ar hins veg­ar um 4,8% ef tekið er til­lit til leiðrétt­inga.

mbl.is