Í byrjun júní tók hið geysivinsæla reykvíska öldurhús Röntgen við rekstri veitingastaðarins Vagnsins á Flateyri. Mikil ánægja hefur ríkt við Önundarfjörð í kjölfar opnunarinnar og er óhætt að segja að það ríki mikil eftirvænting hjá Flateyringum fyrir sumrinu enda hafa stærstu nöfn íslenskrar tónlistar bókað komu sína eins og sjá má hér að neðan.
Von er á fleiri númerum á næstu dögum sem verður tilkynnt síðar.
16.6. Svavar Knútur
19.6. KK
23.6. Kristín Sesselja
25.6. Ragnheiður Gröndal
8.7. Lay Low
9.7. Hipsumhaps
10.7. Góss
15.7. Moses Hightower
16.7. Jógvan og Friðrik Ómar
17.7. Jón & Frikki Dór Jónssynir
17.7 Hin einstaka DJ Dóra Júlía
22.7. Ylja
23.7. Jakob Birgis uppistand
24.7. Bjartar sveiflur
Verslunarmannahelgi
30.7. Verður tilkynnt síðar
31.7. Babies
1.8. Msjé Gauti
13.8 Mugison