Risastöð á Reykjanesi

Landeldisstöð. Undirbúningur framkvæmda á Reykjanesi er hafinn.
Landeldisstöð. Undirbúningur framkvæmda á Reykjanesi er hafinn. Tölvugerð mynd/Samherji

Sam­herji fisk­eldi ehf., dótt­ur­fé­lag Sam­herja, áform­ar að byggja allt að 40 þúsund tonna land­eldi á laxi í Auðlindag­arðinum við Reykja­nes­virkj­un. Hafa náðst samn­ing­ar við HS orku og land­eig­end­ur um upp­bygg­ing­una.

Meðal ann­ars verður nýtt­ur ylsjór sem er affall frá kæl­ingu virkj­un­ar­inn­ar, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Áformað er að byggja stöðina upp á ell­efu árum; seiðastöð, áframeld­is­stöð og frum­vinnslu­hús ásamt þjón­ustu­bygg­ing­um. Heild­ar­fjárfest­ing er áætluð ríf­lega 45 millj­arðar króna. Stjórn Sam­herja hef­ur ákveðið að leggja fjár­magn í fyrsta áfanga, 7,5 millj­arða króna, en ráðger­ir að leita til fleiri fjár­festa þegar kem­ur að frek­ari upp­bygg­ingu.

Stöðin er gríðarlega stór, hvort sem mæli­stika ís­lensks fisk­eld­is er sett á hana eða mæli­stika land­eld­is í heim­in­um. Til sam­an­b­urðar má nefna að heild­ar­fram­leiðsla ís­lensku fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna á laxi var 34 þúsund tonn á síðasta ári, megn­inu var slátrað upp úr sjókví­um.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: