Tíðni eftirlits byggi á áhættuflokkun

Matvælastofnun mun forgangsraða eftirliti með fiskeldisstöðvum samkvæmt nýju áhættumati.
Matvælastofnun mun forgangsraða eftirliti með fiskeldisstöðvum samkvæmt nýju áhættumati. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Nýtt áhættu­flokk­un­ar­kerfi hef­ur verið tekið í notk­un hjá Mat­væla­stofn­un (MAST) og á með kerf­inu að vera hægt að for­gangsraða eft­ir­litsþörf hjá fisk­eld­is­stöðvum er kem­ur að eft­ir­liti með búnaði og rekstri, að því er seg­ir í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar. Fram kem­ur að tíðni eft­ir­lits með starf­semi fisk­eld­is­stöðva frá og með þessu ári byggi á áhættu­flokk­un­ar­kerf­inu.

„Til­gang­ur áhættu­flokk­un­ar er að leggja hlut­laust mat á þá áhættu sem fylg­ir hverri teg­und starf­semi. Við áhættu­flokk­un­ina eru metn­ar helstu hætt­ur sem tengj­ast rekstri og búnaði í fisk­eldi á Íslandi. Þannig verður mögu­legt að byggja um­fang og tíðni op­in­bers eft­ir­lits á áhættu­flokk­un eins og skylt er sam­kvæmt 52. gr. reglu­gerðar nr. 540/​2020 um fisk­eldi og hafa tíðni eft­ir­lits í réttu hlut­falli við áhætt­una. Áhættumiðað eft­ir­lit trygg­ir að eft­ir­liti sé for­gangsraðað út frá áhættu,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Þá verður kerfið end­ur­skoðað að lokn­um tveim­ur árum og í kjöl­farið lagt mat á hvort bæta eigi við frammistöðuflokk­un til að meta eft­ir­litsþörf.

mbl.is/​Helgi Bjarna­son
mbl.is