Myndi aldrei fá sér kaldan pott

Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi Heitirpottar.is
Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi Heitirpottar.is

Kristján Ásgeirsson, eigandi fyrirtækisins Heitirpottar.is, segir að fyrirtækið hafi sjaldan selt fleiri heita potta en á veirutímum. Vinsældir kaldra potta eru líka töluverðar þótt hann myndi aldrei fjárfesta í slíkum potti fyrir sjálfan sig.

Hvernig hefur garðhegðun landsmanna breyst eftir að veiran fór að gera fólki lífið leitt?

„Það sem hefur breyst hjá okkur í pottasölunni eftir Covid er að við seljum meira af pottum. Allar tegundir, og þá frekar stærri potta en minni. Enda hefur fólk verið meira heima, meira saman og vill eiga stóra góða potta, þar sem öll fjölskyldan getur verið saman og notið lífsins. Það sem við finnum fyrir er að fólk er gjarnan með æfingaaðstöðu heima við, notar hana og smellir sér svo í pottinn og tekur teygjuæfingarnar í pottinum ásamt slökuninni eftir æfingar,“ segir Kristján og játar að fólk sé farið að hugsa allt öðruvísi en áður.

„Salan hefur tekið rosalegan kipp. Við höfum reyndar alltaf selt mikið af pottum, en þó sérstaklega mikið undanfarin tvö ár. Mér sýnist ekki að það eigi eftir að minnka næstu árin. Það er líka komið að endurnýjun margra potta sem seldir hafa verið á Íslandi undanfarin 15-20 ár. Íslendingar eru duglegir að endurnýja, enda gefa pottarnir svo mikið frá sér, hlýju, vellíðan og nándina við fjölskyldumeðlimi og vini,“ segir hann.

Hverju er fólk að leita eftir?

„Við seljum mikið af rafmagnspottum og þá sérstaklega saltvatnspottum. Saltvatnspottarnir eru mjög vinsælir núna, en þá ertu að notast við saltblöndu í stað klórs. Þeir eru allir tengdir við þráðlaust net og getur fólk fylgst með pottinum, til dæmis ef potturinn er staðsettur í sumarbústað. Þeir sem eru með ofnæmi, eða viðkvæmir fyrir klór, eða eru með einhver húðvandamál eins og til dæmis soriacis, exem eða einhvern annan húðsjúkdóm, þeir finna síður fyrir sjúkdómnum í saltvatni en klórvatni. Klórpottar seljast samt vel. „Plug and Play“ hitaveitupottar seljast rosalega vel. Þeir koma tilbúnir til notkunar og ekkert mál að tengja þá. Píparinn þarf bara að tengja tvö rör. Vatnið að, og vatnið frá. „Plug and Play“ koma alveg tilbúnir, með einangrun, led-ljósum, burðargrind og klæðningu. „Plug and Play“ eru líka 100% músheldir, en litlu nagdýrin vilja oftast halda sig þar sem er heitt, svo þau lifi af veturinn, og þá halda þau sig undir hitaveituskeljunum. Í „Plug and Play“ komast þau hvergi að og potturinn geislar engum hita frá sér, vegna einangruninnar.“

Einhvers staðar heyrði ég að fólk væri mest að fá sér tvo potta í garðinn um þessar mundir, kaldan pott og heitan pott. Hefur þú orðið var við það?

„Já. Það hefur orðið sprenging í sölu á köldum pottum. Þeir eru uppseldir eins og er, en von á stórri sendingu innan fárra daga. Persónulega skil ég þetta ekki með kalda vatnið. Mér finnst bara óþægilegt að fara í kalt vatn. En fólk sem er að stunda þetta segir að þetta sé himneskt. Endurnýjun er hraðari á vöðvum og þetta er meinhollt. Ég ætla mér bara að láta mér nægja að selja vöruna,“ segir hann og skellihlær.

Hvernig heitir pottar eru í tísku núna?

„Saltvatnspottarnir og stærri pottar. Fólk vill viðhaldsfría klæðningu sem kallar á minna viðhald, það er það sem er að seljast best núna.“

Er eitthvert sérstakt form sem fólk sækist í núna sem það hefur ekki viljað áður?

„Já, fólk vill meira mótaða potta þar sem setið er í góðum legusætum. Legubekkir halda sínum velli og eru um 30% sem vilja bara potta með legubekk. Potturinn verður að hafa legubekk. Það eru margir á þeim vagni.“

Ert þú með pott í þínum garði?

„Já, ég er með Arctic Spas Ocean, sundlaugarpott sem er 5.500 lítra. Þetta er saltvatnspottur með hljómtækjum. Í sumarhúsinu mínu er ég með Arctic Spas Summit XL sem er 2.200 lítra saltvatnspottur,“ segir hann og játar að hafa keypt nýjan heitan pott heim í veirunni.

„Stóri potturinn fór heim í upphafi Covid. Þá vissi ég að fjölskyldan yrði meira saman, krakkarnir ekki í skólanum og við yrðum mikið heima. Krakkarnir eru búnir að halda fjölmörg pottapartý í garðinum heima síðastliðin ár.

Ég er ekki uppáhaldspabbinn í götunni, held frekar í hverfinu. Ég hef ekki tölu á hversu margir krakkar eru búnir að koma heim í pottinn. Ætli ég hafi ekki talið mest yfir 20 krakka þegar mest gekk á. Saltvatnið er búið að halda vel utan um vatnið í pottinum og hann er tandurhreinn, enda saltið algert undraefni í viðhaldi ferskleika vatnsins.Vatnið er ávallt sem nýkomið úr krananum,“ segir Kristján.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: