Fá lóð til landeldis í Viðlagafjöru

Samið. Hallgrímur Steinsson, Íris Róbertsdóttir og Daði Pálsson.
Samið. Hallgrímur Steinsson, Íris Róbertsdóttir og Daði Pálsson.

Hag­stæður hiti sjáv­ar við Vest­manna­eyj­ar skap­ar góðar aðstæður til að ala lax í ker­um á landi. Hóp­ur fjár­festa hef­ur gert sam­komu­lag við Vest­manna­eyja­bæ um að fá út­hlutaðri lóð í Viðlaga­fjöru á svo­kölluðu Nýja­hrauni fyr­ir land­eld­is­stöð.

Hafið er um­hverf­is­mats­ferli vegna verk­efn­is­ins á veg­um fé­lags­ins Sjálf­bært fisk­eldi í Eyj­um ehf. Lár­us Ásgeirs­son stjórn­ar­maður seg­ir gert ráð fyr­ir að fram­kvæmd­ir hefj­ist á næsta ári, ef nauðsyn­leg leyfi fá­ist fyr­ir þann tíma, og að lax verði sett­ur í stöðina á ár­inu 2023.

Stefnt er að því að fram­leiða 10 þúsund tonn á ári en að fram­kvæmd­in verði áfanga­skipt. Fyrst verði byggt upp til fram­leiðslu á fimm þúsund tonn­um og annað eins verði í síðari áfanga.

Í Viðlaga­fjöru er efn­is­náma og seg­ir Lár­us að jafna þurfi lóðina með efn­is­flutn­ing­um inn­an svæðis. Hafi fram­kvæmd­ir þar því lít­il um­hverf­isáhrif. Vest­manna­eyj­ar eru það sunn­ar­lega að þar er hægt að ná í hlýj­asta sjó­inn við landið. Aðstæður henta því vel til eld­is á laxi í kví­um á landi. Ekki þarf mik­inn aðgang að köldu eða heitu vatni. Áformað er að fá seiði ofan af landi en Lár­us seg­ir ekki ákveðið hvort fyr­ir­tækið fram­leiði þau sjálf eða kaupi af öðrum.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: