„Það er eitthvað stórkostlegt að“

Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, kveðst ekki sáttur með starfshætti …
Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, kveðst ekki sáttur með starfshætti Hafrannsóknastofnunar. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég er al­veg sann­færður um það að þessi aðferðafræði sem notuð er til mæl­ing­ar á fiski­stofn­um hún stenst ekki,“ seg­ir Arth­ur Boga­son, formaður Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda, í sam­tali við 200 míl­ur. Hann kveðst svekkt­ur yfir ákvörðun Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, um að fylgja ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar er varðar heild­arafla­mark fisk­veiðiárs­ins 2021/​2022.

„Þetta veld­ur mér mikl­um von­brigðum. […] Það get­ur vel verið að menn séu að verða var­ir við ein­hvern sam­drátt í þorski en að hann sé ein­hver 20% eins og Hafró er að tala um; það bara kem­ur ekki til nokk­urra mála,“ seg­ir Arth­ur.

„Eft­ir 37 ára til­rauna­starf­semi Haf­rann­sókna­stofn­un­ar gef­ur hún út nán­ast sama upp á kíló og hún gaf út í árs­byrj­un 1984 þegar þetta kerfi var sett af stað. Þetta er ár­ang­ur­inn,“ seg­ir hann og bæt­ir við að hann telji nauðsyn­legt að rann­saka starfs­hætti Haf­rann­sókna­stofn­un­ar þar sem „þetta er ekki eðli­legt.“

Fram kom við kynn­ingu á ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar 15. júní að við end­ur­skoðun á stofn­mati í kjöl­far end­ur­mats á afla­reglu var upp­setn­ingu stofn­mats breytt. Þá kom í ljós að viðmiðun­ar­stofn­inn sem tal­inn var í fyrra vera 1.208 þúsund tonn hafi raun­ar verið 19% minni eða 982 þúsund tonn. Stofn­inn er nú tal­inn vera 941 þúsund tonn og sam­drátt­ur því 4,8% milli ára eða 22% miðað við stofn­matið fyr­ir leiðrétt­ingu.

„Gefur aldrei meira af sér

„Það er eitt­hvað stór­kost­legt að ef það er verið að reyna að telja okk­ur trú um það að verið sé að byggja upp fiski­stofn sem gef­ur aldrei meira af sér ár eft­ir ár og ára­tug eft­ir ára­tug. Þeir eru bún­ir að hafa svo lang­an tíma til að sanna þessa aðferðafræði að það hálfa væri nóg, en það er samt haldið áfram að skaka í sama far­inu,“ full­yrðir Arth­ur.

Spurður hvort fé­lags­menn Lands­sam­bands­ins hafi haft vænt­ing­ar um mót­vægisaðgerðir til að milda höggið af lækk­un­inni, svar­ar Arth­ur að hann hafi ekki hafa heyrt marga hafa slík­ar vænt­ing­ar. „Ég held að marg­ir voru að vona að hann [Kristján Þór Júlí­us­son] myndi halda sig við sömu tölu og er í gangi fyr­ir þetta fisk­veiðiár.“

mbl.is