Háafell fyrst í röðinni

Regnbogasilungur settur út í sjókvíar Háafells í Djúpinu í vor.
Regnbogasilungur settur út í sjókvíar Háafells í Djúpinu í vor.

Mat­væla­stofn­un hef­ur veitt Háa­felli, dótt­ur­fyr­ir­tæki Hraðfrysti­húss­ins-Gunn­var­ar, rekstr­ar­leyfi til lax­eld­is í Ísa­fjarðar­djúpi. Lax­eldi hefst því í Djúp­inu næsta vor.

Mat­væla­stofn­un hafnaði rök­um Arn­ar­lax sem gerði at­huga­semd­ir við af­greiðslu Skipu­lags­stofn­un­ar á frummats­skýrsl­um sem ræður því hvaða fisk­eld­is­fyr­ir­tæki fá leyfi og hver ekki.

„Þetta er langþráður áfangi. Til­kynn­ing um eldi á sjö þúsund tonn­um af laxi og regn­bogasil­ungi var send inn í nóv­em­ber 2011. Þetta er því end­ir­inn á tíu ára ferli,“ seg­ir Gauti Geirs­son, nýráðinn fram­kvæmda­stjóri Háa­fells, og held­ur áfram: „Við erum ánægð með að vera kom­in með leyfið í hend­ur og spennt að geta gert það sem við vilj­um gera, að ala fisk á sjálf­bær­an hátt í stað þess að vera í skriffinnsku sem engu skil­ar.“

Háa­fell hef­ur leyfi til að ala sjö þúsund tonn af regn­bogasil­ungi og þorski og er að ala regn­bogasil­ung sem sett­ur var út í sjókví­arn­ar nú í vor og í fyrra­vor. Fyrri hópn­um verður slátrað í haust og þeim seinni að ári, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um þessi mál í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: