Kelly nýr stöðvarstjóri í Ólafsvík

Kelly Umlah er nýr stöðvarstjóri.
Kelly Umlah er nýr stöðvarstjóri. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur ráðið Kelly Umlah sem nýj­an stöðvar­stjóra og sér­fræðing í Ólafs­vík. Fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar að meðal helstu verk­efna í starfstöðinni séu sýna­taka úr afla, grein­ing maga­sýna og þör­unga.

„Fyr­ir starfar í Ólafs­vík Gina Sape Sap­anta. Kelly mun leiða frek­ari upp­bygg­ingu í stöðinni í Ólafs­vík á næstu árum. Við bjóðum Kelly vel­komna til starfa hjá Haf­rann­sókna­stofn­un og hlökk­um til að sjá starfstöðina í Ólafs­vík byggj­ast upp og blómstra frek­ar með henn­ar hjálp og Ginu,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Kelly er með meist­ara­gráðu frá Há­skóla­setri Vest­fjarða/​Há­skól­an­um á Ak­ur­eyri í haf- og strandsvæðastjórn­un og BES-gráðu frá St. Mary‘s-há­skóla í Kan­ada í um­hverf­is­fræðum. Kelly hef­ur unnið við kennslu í um­hverf­is­fræðum og við skipu­lagn­ingu á íþrótta- og ung­menn­a­starfi und­an­far­in ár.

mbl.is